föstudagur, nóvember 02, 2007

sælar elskurnar mínar
þetta er nú auma bloggið sem ég er með.
spurning um ara að slútta þessu formlega.. leyfa því að deyja með snefil af reisn .. snefil

hmmmmmm...
þð segið það já.
ég er í skóla, var ég búin að segja ykkur það?
ég er ekki að standa mig sem skildi, alls ekki nógu dugleg að læra heima, virðist bara ekki komast í þennan rómaða lærdómsgír sem ég hef heyrt svo mikið talað um .
ég er líka að vinna í frístund í fellaskóla. svo þegar maður er búin í skólanum og svo vinnunni , þá langar manni helst bara að tjilla.. að læra er ekkert sértsaklega ofarlega á dagskránni, ó nei .

en ég verð að reynað taka mig á, ég er að reyna ... .þið sjáið hvað ég er dugleg. ég á að verað gera ritgerð fyrir mánudagin en ákveð í staðin að blogga.. eitthvað sem ég hef ekki gert svo mánuðum skiptir, ætli ég fari ekki að taka til í herberginu mínu á eftir, allt til að sleppa við að læra. og þá er nú botninum náð.

hmmmm..
stefnir er hættur að leigja og fluttur inn, hahaha.. það munar ekki um það.
planið er að vera hér fram í febrúar og kaupa síðan einbýlishús í garðabæ . ó já.

en djöfulsins djöfull,ég verð að reynað gera eitthvað, þó það sé ekki nema stara niður á blað þangatil ég ákveð að farað þvo á mér hárið

love u